Farþegum fjölgar í strætó (10.10.06)

Frá því Strætó bs hóf breytingar á leiðakerfi sínu árið 2003 hefur VSÓ Ráðgjöf verið ráðgjafi þeirra við hönnun þess. Það er því gaman frá því að segja að síðan nýja leiðakerfið var tekið í notkun hefur farþegum Strætó bs. fjölgað umtalsvert.
Farþegum Strætó fjölgaði um 45.801 farþega, eða 6,8% í september, miðað við sama mánuð á síðasta ári. Farþegum Strætó hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu mánuðina og er aukningin 3,5% fyrstu níu mánuði ársins, miðað við sama tíma í fyrra. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð þar sem farþegum Strætó fjölgar og fimmti mánuður ársins þar sem farþegar eru fleiri en í sama mánuði síðasta árs.
„Þessi farþegafjölgun er sérstaklega ánægjuleg eftir samdrátt síðustu ára,” segir Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó bs í tilkynningu frá fyrirtækinu. „Það hefur verið viðvarandi farþegaaukning síðustu mánuðina. Það bendir ótvírætt til þess að breytingarnar sem gerðar hafa verið á leiðakerfinu mæti þörfum viðskiptavina okkar og að almenningur sé að átta sig á því að strætó er raunhæfur valkostur á höfuðborgarsvæðinu.”

Á myndinni má sjá aðgengi að HÍ án skiptingar í nýja leiðakerfinu þ.e. hvaðan má komast til HÍ án þess að skipta um vagn og gönguleiðir að biðstöðvum sem þeir vagnar stoppa á.
|