Umhverfismat samgönguáætlunar 2007-2018 (06.10.06)
Auglýst hefur verið til kynningar umhverfismat samgönguáætlunar 2007-2018 og er þetta fyrsta umhverfismatið sem unnið er skv. nýjum lögum nr.105/2006 sem tóku gildi í sumar. Sérstakur vinnuhópur var settur á laggirnar til að vinna að umhverfismati samgönguáætlunar og í honum sátu fulltrúar samgönguráðuneytisins, Vegagerðarinnar, Flugmálastjórnar Íslands og Siglingastofnunar.
VSÓ Ráðgjöf vann með hópnum að skilgreiningu verkefnisins, umhverfismatinu og gerð umhverfisskýrslu. Þetta verkefni hefur verið mjög áhugavert þar sem áætlunin nær til alls landsins og tekið er á mörgum þáttum, s.s. umferðaröryggi, byggðaþróun, hálendi Íslands og loftslagsmálum.
Frestur til að gera athugasemdir við umhverfismat samgönguáætlunar er til og með 20. nóvember 2006 og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar. Athugasemdir skulu berast samgönguráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík. Hægt er að nálgast auglýst gögn hér fyrir neðan og á heimasíðum samgönguráðuneytisins og stofnana þess.
Að loknum athugasemdafresti mun vinnuhópurinn, eftir því sem við á, bæta og breyta umhverfisskýrslu. Í endanlegri skýrslu verður gerð grein fyrir helstu athugasemdum sem fram hafa komið og hvernig hefur verið brugðist við þeim.
Samgönguáætlun
Umhverfisskýrsla
Kort 1
Kort 2
Kort 3 |