Fljótsdalur (18.08.06)
Þann 16. ágúst síðastliðinn var lokið við uppsteypu umhverfis seinustu þrjár af sex vélum stöðvarhússins í Fljótsdal og er því steypuvinnu að mestu leyti lokið í stöðvarhúsinu en steypuvinnu umhverfis fyrstu þrjár vélarnar lauk 21.febrúar. Við tekur nú uppsetning véla- og spennabúnaðar. Fyrsti spennirinn, sem vegur 120 tonn, kom á staðinn í nótt og er von á þremur öðrum í þessari viku. Niðursetning á rafölum gengur vel og hafa tveir þeirra nú þegar verið settir niður og sá þriðji kominn á staðinn.
Ásamt eftirliti við stöðvarhúsið hefur VSÓ ráðgjöf ásamt öðrum eftirlit með byggingu þjónustu- og skrifstofuhúsnæðis, tengivirkis og fóðrun tveggja fallganga sem munu flytja vatn í vélar virkjunarinnar. Vinna við fóðrun fallganga hefur gengið vel undanfarið. Fóðrun í báðum göngum er komin upp í u.þ.b. 410 m hæð en göngin eru alls um 420 m há. Bygging þjónustu- og skrifstofubyggingar virkjunarinnar gengur samkvæmt áætlun en unnið er við uppsetningu innréttinga þessa dagana.

|