Opnun nýs Laufskála í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (04.07.06)

Þann 1.júlí síðastliðinn var nýr og endurnýjaður Laufskáli tekinn í notkun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Um leið var mikið og hátt þil fjarlægt en það hafði afmarkað vinnusvæðið frá brottfararfarþegum síðan gamli Laufskálinn var rifinn í fyrra.
Þetta er mikilvægur áfangi í endurnýjun flugstöðvarinnar og á næstu dögum verður enn eitt skrefið stigið þegar ný verslunarsvæði verða opnuð á 2.hæð. Brottfararfarþegar fara nú um nýja Laufskálann upp á 2.hæð þar sem fyrst taka við vopnaleitarhlið og síðan sjálfur brottfararsalurinn. Þessi leið farþega að vopnaleitinni er einkar glæsileg og með því besta sem gerist.
|