Skipulag og umhirða frístundalóða (14.06.06)
Í næstu viku mun Endurmenntun Háskóla Íslands standa fyrir námskeiði í skipulagi og umhirðu frístundalóða í samstarfi við VSÓ Ráðgjöf. Námskeiðið er ætlað bæði núverandi og tilvonandi frístundahúsaeigendum, ásamt öðru áhugafólki um frístundalóðir.
Fjallað var um námskeiðið, í viðtali við Ólaf Melsted landslagsarkitekt hjá VSÓ og Rögnu Haraldsdóttur verkefnastjóra hjá Endurmentun HÍ, í þættinum Ísland í bítið þann 13. júní síðastliðinn. Finna má viðtalið með því að velja Vef TV - Ísland í bítið - 13.06.06 - Námskeið fyrir sumarhúsaeigendur.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
Skipulag og frágang lóðar.
Staðsetningu bústaðar gagnvart umhverfi, landslagi, lóðarmörkum og þess háttar.
Staðsetningu potts, flaggstangar, verkfærahúsa og matjurtagarðs.
Ýmsar reglur, réttindi og skyldur.
Trjá- og runnategundir sem henta vel við erfiðar aðstæður, t.d. rýran jarðveg og veðurálag. Farið verður yfirstaðsetningu í landi, útplöntun, flutning o.fl. ásamt gerð skjólbelta og tegundir sem henta í skjólbelti.
Farið verður yfir ýmis umhirðumál innan frístundalóða. Sérstaklega verður skoðuð umhirða gróðurs, t.d. lífrænn áburðurog lífræn inngrip gegn illgresi og meindýrum.
Safnhaugar, jarðgerð og ýmsar vistvænar leiðir í umhirðu skoðaðar.
Kennarar: Ólafur Melsted landslagsarkitekt, Magnús Bjarklind garðyrkjutæknir og Baldur Gunnlaugsson garðyrkjutæknir.
Tími: Mán. 19. og mið. 21. júní kl. 17:00-19:00 og fim. 22. júní kl. 17:00-19:30 (3x).
Verð: 12.900 kr.
Hjónaafsláttur: Veittur er 30% hjónaafsláttur á annað námsgjald.
Landsamband sumarhúsaeigenda: 10% afsláttur af fullu verði.
Skráning: Skráning á námskeiðið fer fram á vef Endurmenntunar HÍ
|