Leturstær
ð Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Fréttir - Gjábakkavegur, ný matsskýrsla

Gjábakkavegur - Ný matsskýrsla (20.01.06)

 

VSÓ Ráðgjöf hefur nú lokið nýrri matsskýrslu um Gjábakkaveg undir verkstjórn Vegagerðarinnar. Í nýju mati eru metin áhrif af átta framkvæmdakostum. Þeir eru leiðir 1, 2, 2+1, 3 og 12a austan megin og leiðir 1, 7 og 3+1 vestan megin.

Niðurstaða matsvinnu er að á heildina litið eru áhrif hinna mismunandi leiða Gjábakkavegar á umhverfið ekki mikil. Áhrif á einstaka umhverfisþætti eru frá því að vera jákvæð eða engin, upp í talsverð neikvæð áhrif en í flestum tilfellum teljast áhrifin lítil til nokkur.

Þeir umhverfisþættir sem verða fyrir mestum áhrifum á framkvæmdasvæðinu eru umferðaröryggi, landslag, jarðmyndanir, gróður og vatnafar. Áhrifin eru þó mismunandi eftir leiðum. Varðandi neikvæð áhrif er helst um að ræða sjónræn áhrif nýs vegar í lítt röskuðu landi, skerðingu á eldhrauni og votlendi sem njóta sérstakrar verndar skv. 37. gr. náttúruverndarlaga nr. 44/1999 og skerðingu náttúrulegra birkiskóga.

Byggt á samanburði leiða m.t.t. vegtækni, kostnaðar, umferðaröryggis, landnotkunar og umhverfisáhrifa leggur Vegagerðin til að lagður verði nýr Gjábakkavegur samkvæmt leið 3 og 7. Það er jafnframt mat framkvæmdaraðila að þeir framkvæmdakostir sem hafa verið kynntir til athugunar í mati á umhverfisáhrifum komi ekki til með að hafa umtalsverð umhverfisáhrif í skilningi laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Skipulagsstofnun hefur samþykkt að auglýsa matsskýrslu Vegagerðarinnar um Gjábakkaveg þar sem hún er í samræmi við matsáætlun og lög um mat á umhverfisáhrifum. Matsskýrslan mun liggja frammi til kynningar frá 24. janúar til 7. mars 2006 á skrifstofum Bláskógabyggðar í Aratungu og skipulags- og byggingarfulltrúa á Laugarvatni, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Einnig verður hægt að nálgast matsskýrslu á heimasíðu Vegagerðarinnar (www.vegagerdin.is) og VSÓ Ráðgjafar (www.vso.is). Frestur almennings til að skila athugasemdum við matsskýrsluna er til 24. mars 2006. Athugasemdir eða ábendingar, jákvæðar og neikvæðar, skal senda skriflega til Skipulagsstofnunar með bréfi, símbréfi eða tölvupósti.

Nýja matsskýrslu (samantekt og niðurstöður), ljósmyndir, kort og sérfræðiskýrslur er að finna á vef matsverkefnisins.

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is