Kárahnjúkar (22.12.05)

VSÓ ráðgjöf er ásamt fleirum með eftirlit á stöðvarhússvæðinu í Fljótsdal.
Í síðustu viku skartaði Hérað sínu fegursta, þar sem snjór var yfir öllu og töluvert frost. Héraðið var því eins og jólakort á að líta.
Hér á virkjunarsvæðinu gengur allt sinn vana gang. Verkinu miðar vel áfram og er verið að vinna við niðursetningu véla í stöðvarhúsi.
Verktakinn sem vinnur við stálfóðrun fallganganna hefur hafið vinnu að nýju. Þar eru menn að koma sér af stað, en fóðrun ganganna er mjög sérhæft og erfitt verk. Hífa þarf einingar sem vega allt að 45 tonn niður í um 400 m langa pípu sem er um 4 m í þvermál. Þegar einingarnar eru komnar á sinn stað þarf að sjóða þær saman og steypa inn. Þetta er bæði seinlegt og erfitt verk, en miðar í rétta átt. |