19. maí 2017

Vesturbugt – Vinningstillaga að veruleika

Þótti vinningstillagan sýna einstakan fjölbreytileika í útfærslu byggðarinnar og skapandi lausnir í mótun bygginganna. Einnig þykir fyrirhugað torgsvæði vera mjög hlýlegt og að flæði inn á svæðið verði gott. Þá var sérstaklega litið til áhugaverðrar lausnar á aðgengi að bílakjallara um sérstök stigahús sem liggja frá sameiginlegum útisvæðum.

Bílakjallarinn sjálfur verður svo með pláss fyrir allt að 190 bíla og fyrirhugað er að hann verði í rekstri Bílastæðasjóðs og opinn almenningi. Kjallarinn verður málaður í björtum og aðgreinanlegum litum ásamt því að njóta dagsbirtu, sem á að stuðla að öryggistilfinningu vegfarenda.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík. segir fjölbreytileika í fyrirrúmi, en íbúðirnar verða í mismunandi stærðum og gerðum, og hluti þeirra er hugsaður til leigu. Þar að auki mun Reykjavíkurborg kaupa 74 af íbúðunum og setja í hendur félaga sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða, s.s. félög stúdenta eða eldri borgara, byggingarfélög öryrkja eða byggingarsamvinnufélög. Framkvæmdir munu hefjast innan 15 mánaða og áætlað að hægt verði að klára svæðið innan fimm ára.

 

Vesturbugt ehf.

Sérstakt félag, Vesturbugt ehf., hefur verið stofnað með það hlutverk að annast uppbyggingu svæðisins í samstarfi við Reykjavíkurborg, en Bjarki A. Brynjarsson framkvæmdarstjóri Vesturbugtar er mjög spenntur fyrir verkefninu. „Við höfum fengið með okkur frábært teymi arkitekta sem hafa lagt mikinn metnað í að þróa hugmyndafræði svæðisins þannig að það verði aðdráttarafl fyrir íbúa og gesti. Í bland við afar fallega íbúðarbyggð verða veitingastaðir og verslanir á jarðhæðum sem opnast út á skjólsæl torg. Slippurinn, Grandinn og hafnarsvæðið eru nú þegar orðin hringiða sérverslana og veitingastaða og maður þarf ekki að staldra lengi við til þess að sjá að nú þegar er iðandi mannlíf á svæðinu,“ segir Bjarki.

Grímur M. Jónasson, framkvæmdastjóri VSÓ, segir að Vesturbugtin sé mjög sérstakt svæði á einstökum stað við höfnina og slippinn. „Það er frábært tækifæri fyrir VSÓ að koma að þróun og undirbúningi verkefnisins frá upphafi og annast síðan verkfræðilega hönnun byggðarinnar í samstarfi við öflugt teymi arkitekta. Hér nýtist áratuga reynsla okkar af hönnun og mannvirkjagerð og við leggjum áherslu á að gæði bygginganna verði í góðum takti við gæði umhverfisins sem er auðvitað einstakt í borginni og þótt víðar væri leitað,“ segir Grímur.