Leturstærð
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. > Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Verkefni - Skipulagsverkefni - Skipulagsverkefni í Reykjanesbæ

 

Skipulagsverkefni í Reykjanesbæ


04.06.2009 - Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2008-2024 - Tillaga

Vinna við endurskoðun Aðalskipulags Reykjanesbæjar hófst í árslok 2006. Reykjanesbær setti á fót stýrihóp sem hafði umsjón með skipulagsvinnunni og vann náið með skipulagsráðgjöfum við gerð aðalskipulagsins á öllum stigum skipulagsvinnunnar. 

Í upphafi voru skilgreindir helstu verkþættir skipulagsvinnu og áætlaður verktími og kostnaður. Í júlí 2007 voru kynnt leiðarljós, markmið og áherslur skipulagsvinnu og hefur hún byggt á þeim grunni ásamt þeim ábendingum sem komið hafa fram á kynningartíma.  Í júní 2008 voru kynnt drög að Aðalskipulagi Reykjanesbæjar og í apríl 2009 var tillaga að Aðalskipulagi 2008-2024 kynnt á opnum fundi. 

Skipulagsvinnan fer fram á þeim tíma sem umfangsmiklar breytingar eiga sér stað í sveitarfélaginu og ber helst að nefna að fyrrum varnarsvæði eru færð í borgarleg not. Öllum breytingum fylgja tækifæri og til þess að nýta sér þau sem best mótaði Reykjanesbær sér framtíðarsýn sem varð svo grunnur að stefnumiðum í skipulagsvinnunni. Stefnan miðar að góðu samfélagi m.t.t. opinberrar þjónustu, samgangna, lýðheilsu, náttúruverndar, atvinnuuppbyggingar, fjölbreytileika starfa, menntunar og eftirsóknarverðra íbúðasvæða með margvíslegum búsetukostum.

Byggt á þessari stefnu hefur verið mótuð tillaga að Aðalskipulagi, sem er ætlað að leiðbeina í þróun og uppbyggingu samfélagsins í Reykjanesbæ, hvar og í hvaða formi hún verður, marka stefnu um þær aðgerðir sem þarf að grípa til og þau sjónarmið sem þarf að hafa til hliðsjónar. Stefna sveitarfélagsins er metnaðarfull og er markmiðið að íbúar Reykjanesbæjar verði orðnir 23.000 talsins í lok skipulagstímabilsins. Einnig er stefnt að því að störf í sveitarfélaginu verði þá um 11.000. Til að þessi markmið gangi eftir þarf að skapa umhverfi sem er eftirsóknarvert fyrir fyrirtæki og íbúa. Þessu umhverfi er lýst í tillögu að Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024.

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is