Leturstærð
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. > Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Verkefni - Mat á umhverfisáhrifum - Stækkun Reykjanesvirkjunar og frekari nýting jarðhitavökva

Stækkun Reykjanesvirkjunar og frekari nýting jarðhitavökva
Mat á umhverfisárhifum


Áformað er að stækka núverandi jarðvarmavirkjun á Reykjanesi í Reykjanesbæ og Grindavík um 50 MWe. Einnig er fyrihugað að byggja 30-40 MWe virkjun til að vinna orku úr pækli frá háþrýstiskiljum, svokölluð pækilvirkjun, og bæta þannig nýtingu jarðhitavökvans. Ráðgert er að bora fimm til sjö vinnsluholur til öflunar orku auk einnar niðurrennslisholu. Einnig þarf að auka sjótöku til kælingar, bora fleiri sjótökuholur og stækka sjótökusvæði. Tilgangur fyrirhugaðra framkvæmda er að auka og bæta nýtingu þeirrar orku sem aflað er með nýtingu jarðhita á Reykjanesi og að styðja þannig við iðnaðaruppbyggingu og stækkun byggðar á Suðurnesjum.

VSÓ Ráðgjöf annast verkstjórn matsvinnunnar í samráði við framkvæmdaraðila. Framkvæmdir eru innan iðnaðar- og orkuvinnslusvæða á Reykjanesi en þau eru innan svæðis á náttúruminjaskrá sem ráðgert er að friðlýsa samkvæmt Náttúruverndaráætlun 2004-2008. Á Reykjanesi eru mjög fjölbreyttar og merkilegar jarðmyndanir og svæðið er fjölsóttur ferðamannastaður. Á svæðinu er stórt kríuvarp og við hverasvæði í nágrenni framkvæmdasvæðisins finnast sjaldgæfar plöntutegundir.

 

 

 

Fréttir um verkefnið

Tillaga að matsáætlun

Frummatsskýrsla

Endanleg matskýrsla

Álit Skipulagsstofnunar


Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is