Leturstærð
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Byggingasvið
    2. Framkvæmdasvið
    3. Umhverfissvið
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. > Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Verkefni - Mat á umhverfisáhrifum - Bakkafjöruhöfn, Bakkafjöruvegur og efnistaka

Bakkafjöruhöfn, Bakkafjöruvegur og efnistaka á Seljalandsheiði

 

Fyrirhuguð er bygging ferjuhafnar í Bakkafjöru í Austur-Landeyjum með það að markmiði að bæta almenningssamgöngur milli Vestmannaeyja og fastalandsins. Til þess þarf vegtengingu að höfninni frá Hringvegi og efnistöku vegna framkvæmda á Seljalandsheiði og úr Markarfljótsaurum.

Framkvæmdaraðilar eru Vegagerðin og Siglingastofnun. Undirbúningur hefur miðast við að framkvæmdir geti hafist árið 2008 og að höfnin verði tekin í notkun árið 2010. VSÓ Ráðgjöf hefur annast mat á umhverfisáhrifum þessara framkvæmda.

Höfnin, sem nú hefur verið nefnd Landeyjahöfn, verður staðsett skammt vestan ósa Markarfljóts á Landeyjasandi. Til stendur að leggja að höfninni 11,8 km langan veg vestan Markarfljóts s.k. Bakkafjöruveg. Hann mun liggja um svæði á náttúruminjaskrá þar sem er fjölbreytt fuglalíf. Fjallað er um þann valkost að nýta núverandi vegakerfi um Austur Landeyjar og leggja nýjan 5 km veg frá Bakkaflugvelli að höfninni. Framkvæmdaraðili hefur lagst gegn þeim kosti þar sem núverandi vegakerfi býður ekki upp á nægt umferðaröryggi.

Opnuð verður ný náma á Seljalandsheiði þar sem fundist hefur berg vel fallið til byggingar brimvarnargarða. Einnig verður tekið efni úr Markarfljóti til vegagerðar.

Helsti kostur reksturs ferju frá nýrri höfn er að ferðatími milli lands og Vestmannaeyja á sjó styttist úr 2:45 klst miðað við núverandi ferju í 30 mín. Vegalengdin sem farin er á sjó styttist úr 74 km í 13 km.

Frummatsskýrsla

 

Matsáætlun

 

Sérfræðiskýrsla, Fuglar - Viðbótarathuganir

 

 

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is