Leturstærð
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. > Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsíða - Verkefni - Mat á umhverfisáhrifum - Jarðhitanýting á Reykjanesi - Samráð og kynning

Jarðhitanýting á Reykjanesi - Samráð og kynning


Hitaveita Suðurnesja stofnaði til samráðshóps í tengslum við matsvinnu við fyrirhugaða framkvæmd vegna jarðhitanýtingar á Reykjanesi. Valið var í samráðshópinn með tilliti til þess að fá sem flest sjónarmið inn í umræðuna en einnig var haft í huga að fulltrúar í hópnum þekktu til svæðisins og/eða byggju yfir þekkingu sem gæti nýst við umfjöllum um svæðið og mat á umhverfisáhrifum. Gert var ráð fyrir því að niðurstöður og tillögur samráðhópsins gætu nýst sem ráðgjöf til framkvæmdaraðila og myndu nýtast við vinnu að matsskýrslu.

Hlutverk samráðshóps var sérstaklega að gefa gaum að áhrifum jarðhita- nýtingar eins og augað nemur hana, á landslag svæðisins og þar með áhrif á útivist og ferðamennsku. Einnig var afmörkun framkvæmdasvæðis og hugmyndir um nýtingu svæðisins teknar til umfjöllunar. Markmiðið var m.a. að setja saman í greinargerð niðurstöður og tillögur samráðshóps, sem endurspegluðu vilja hans, án þess þó að þar kæmi inn skoðun fulltrúa framkvæmdaraðila eða ráðgjafa frá VSÓ.

Greinargerð samráðshóps er birt í heild sinn í viðauka 4 í matsskýrslu.

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is