Jarðhitanýting á Reykjanesi - Framkvæmd
Lagt er til að framkvæmdin verði unnin í áföngum vegna eðlis jarðhitanýtingar. Í fyrsta áfanga verða 7 holur boraðar inn á iðnaðarsvæði og hefur skipulagsstjóri ríkisins og umhverfisráðherra heimilað þær framkvæmdir í úrskurðum sínum. Annar áfangi felur í sér borun 3 niðurdælingaholna norðaustan iðnaðarsvæðis ásamt lögnum frá fyrrgreindum holum inn á iðnaðarsvæði auk möguleika á að leiða affallsvökva í sjó (kort 1). Þriðji áfangi felur í sér borun 3 tilraunaholna utan iðnaðarsvæðis, sem hannaðar verða á þann hátt að þær geti nýst sem vinnsluholur (kort 1).
|
Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is
|
|