Jarðhitanýting á Reykjanesi - Fréttir
Úrskurður Skipulagsstofnunar (27.09.02)
Skipulagsstofnun hefur fallist á framkvæmdir Hitaveitu Suðurnesja við jarðhitanýtingu á Reykjanesi með skilyrðum. Lagst er gegn framkvæmdum við holu 3 í 3. áfanga vegna umtalsverða umhverfisáhrifa. Skipulagsstofnun setur eftirfarandi skilyrði fyrir framkvæmdum:
1. Tryggt verði að stærð og vatnsborð Gráa lónsins verði óbreytt.
2. Affallsvatn sem til fellur á meðan borun og prófunum hola í3. áfanga stendur verði leitt í Gráa lónið.
3. Tryggt verði að ekki myndist útfellingar eða tjarnir vegna affallsvatns við borun og prófun hola í 2. áfanga.
Úrskurðurinn er birtur í heild sinni á vef Skipulagsstofnunar. Úrskurð Skipulagsstofnunar er hægt að kæra og er kærufrestur til 6. nóvember 2002. Hér má nálgast matsskýrslu á pdf-formi. Viðaukar 2 (gróðurkort) og 3 (myndaskrá) á pdf-formi.
Matsskýrsla kynnt (28.06.02 )
Matsskýrsla Hitaveitu Suðurnesja um mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðrar jarðhitanýtingar á Reykjanesi hefur verið auglýst til kynningar frá og með 28. júni. Almenningur hefur nú 6 vikur til að gera athugasemdir, en athugasemda- frestur rennur út þann 9. ágúst. Hér má nálgast matsskýrslu á pdf-formi.
Matsskýrsla send til Skipulagsstofnunar (10.04.02)
Matsskýrsla Hitaveitu Suðurnesja um mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðrar jarðhitanýtingar á Reykjanesi hefur verið send Skipulagsstofnun til yfirlestrar. Yfirlestri Skipulagsstofnunar lýkur í næstu viku (vikuna 15. - 19. apríl). Að þeim yfirlestri loknum mun framkvæmdaraðili taka sér tvær vikur til að fara yfir allar þær athugasemdir sem kunna að berast frá Skipulagsstofnun og senda svo inn matsskýrslu til formlegrar athugunar.
Úrskurður Skipulagsstofnunar gæti því legið fyrir í í byrjun júlímánaðar. Matsskýrslan verður aðgengileg hér á netinu um leið og hún hefur verið send inn til Skipulagsstofnunar til athugunar.
|