Gjábakkavegur - Framkvæmd
Vegagerðin kynnir áform um Gjábakkaveg (365) á milli Þingvalla og Laugarvatns. Vegurinn, sem er um 16 km langur, liggur um þann hluta Bláskógabyggðar sem áður hét Laugardalshreppur og Þingvallahreppur, þá sneiðir vegurinn í gegnum land Grímsnes- og Grafningshrepps. Í nágrenni fyrirhugaðs vegar eru Gjábakkahraun, Reyðarbarmur og Laugarvatnsvellir.
Um er að ræða veg af tegund C1, norðan Lyngdalsheiðar, milli Gjábakka við Þingvallaþjóðgarð og Laugarvatns. Megin tilgangur framkvæmdarinnar er að:
- Bæta samgöngur: Nýr Gjábakkavegur á að verða betri vegtenging fyrir íbúa, atvinnu og þjónustu í sameinuðu sveitarfélagi Bláskógabyggð. Vegurinn á að verða heilsársvegur með bundnu slitlagi og hönnunarhraða 90 km/klst. Nýr og betri vegur kemur til með að stytta vegalengd milli Laugarvatns og Reykjavíkur um 20 km.
- Auka umferðaöryggi: Nýjum Gjábakkavegi er ætlað að auka verulega umferðaröryggi með því að stuðla að jafnari aksturshraða, sem m.a. felst í að auka sjónlengdir, afnema krappar beygjur, minnka langhalla, breikka veg og byggja vegaxlir, draga úr hæð vegar yfir sjávarmáli og leggja bundið slitlag.
- Leggja veg sem uppfyllir hönnunarkröfur: Stuðst verður við hönnunarstaðla Vegagerðarinnar til að ná þessum markmiðum.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdin við lagningu Gjábakkavegar verði á tímabilinu 2004 til 2006. Kostnaður við verkið er áætlaður um 500 milljónir króna.
|