Norðausturvegur um Hólaheiði
16.08.05 - Úrskurður um Norðausturveg um Hólaheiði
Þann 3.ágúst síðastliðinn úrskurðaði Skipulagsstofnun um mat á umhverfisáhrifum Norðausturvegar um Hólaheiði milli Öxafjarðar og Þistilfjarðar og norður til Raufarhafnar. Matið var unnið af VSÓ Ráðgjöf undir verkstjórn Vegagerðarinnar. Að verkefninu komu einnig aðilar með sérþekkingu á ýmsum sviðum, s.s. jarðfræði, gróðurfari, fuglalífi og veðurfari.
Úrskurðurinn var í samræmi við niðurstöðu matsvinnunnar og er fallist á fyrirhugaða veglagningu Norðausturvegar um Hólaheiði samkvæmt leiðum 140, 141 og 150 í 1. áfanga, leiðum 210 og 220 í 2. áfanga og leiðum 310 og 320 í 3. áfanga með eftirfarandi skilyrðum:
- Vegagerðin skal standa að endurheimt votlendis af sömu stærð og það votlendi sem skerðist vegna framkvæmdanna.
- Gruggmyndandi framkvæmdir við brúun Ormarsár skulu ekki fara fram á veiðitíma. Fiskgengt ræsi verði sett í Hólsá þar sem hún verður þveruð.
- Vegna áhrifa framkvæmdanna á menningarminjar skal Vegagerðin merkja fornleifarnar: Brekkusel (NÞ-068:013), Smalaskál (NÞ-068:035), brú (NÞ-068:019), mógrafir (NÞ-071:003) á 1. áfanga og myllubrú (NÞ-054:008) og myllu (NÞ-054:028) vegna veglínu 310 og Réttarklett (NÞ-054:018) vegna veglínu 320. Rústasvæðin við Brekkusel og Péturssel (NÞ-083:013) ber að afmarka í heild.
- Fornleifina, gata (NÞ-068:026), ber að mæla upp þar sem sú veglína sem verður fyrir valinu þverar hana og færa hana inn á loftmynd eða kort.
- Þegar fyrir liggja nánari upplýsingar um staðsetningu vegar við bæjarstæðin á Hóli ber að greina Fornleifavernd ríkisins frá þeirri ákvörðun sem meti rannsóknarþörf áður en framkvæmdir hefjast.
Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 9. september 2005.
02.03.05 - Mat á umhverfisáhrifum Norðausturvegar um Hólaheiði
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar matsskýrslu um Norðausturveg um Hólaheiði, Katastaðir-Sævarland-Raufarhöfn. Vegagerðin áformar að byggja um 56 km langan veg á milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar um Hólaheiði og Hófaskarð, með tengingu til Raufarhafnar. Vegurinn liggur um Öxarfjarðarhrepp og Svalbarðshrepp og verður hluti af Norðausturvegi nr. 85.
- Gert er ráð fyrir að skipta framkvæmdinni í þrjá áfanga. Tilgangur framkvæmdarinnar er að:
- Styrkja samgöngur milli byggðakjarna á Norðausturlandi.
- Lágmarka akstursfjarlægð á milli þéttbýliskjarna og stuðla þannig að myndun eins þjónustusvæðis sem nær til Kópaskers, Raufarhafnar og Þórshafnar.
- Auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum á svæðinu með því að leggja veg með hönnunarhraða 90 km/klst.
Mat á umhverfisáhrifum og gerð matsskýrslu er unnið af VSÓ Ráðgjöf og Vegagerðinni undir verkstjórn Vegagerðarinnar. Að verkefninu koma einnig aðilar með sérþekkingu á ýmsum sviðum, s.s. jarðfræði, gróðurfari, fuglalífi og veðurfari. Hægt er að nálgast öll gögn um matið á síðu Vegagerðarinnar.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 2. mars til 13. apríl 2005 á skrifstofum Raufarhafnarhrepps, Svalbarðshrepps og Öxarfjarðarhrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 13. apríl 2005 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
|