Leturstęrš Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. > UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Um VSÓ Ráðgjöf - VSÓ Ráðgjöf 50 ára - Ágrip af sögu VSÓ Ráðgjafar

Ágrip af sögu VSÓ Ráðgjafar

Stefán Ólafsson 1924-1975
VSÓ Ráðgjöf, sem til ársins 1996 hét Verkfræðistofa Stefáns Ólafssonar, var stofnuð af Stefáni Ólafssyni byggingarverkfræðingi árið 1958. Fyrstu tvö árin rak hann stofuna með Helga H. Árnasyni en næstu fjögur árin með Gunnari B. Guðmundssyni.

Bjarni H. Frímannsson, sem hóf störf árið 1966, tók við framkvæmdastjórn af Stefáni Ólafssyni árið 1969 og þremur árum síðar var fyrirtækinu breytt í hlutafélag. Stefán P. Eggertsson kom til starfa 1973 og eignuðust þeir Bjarni og Stefán fljótlega meirihluta í fyrirtækinu, og voru aðalstjórnendur þess í meira en þrjátíu ár.

Hönnun burðarvirkja var lengi vel eitt af aðalviðfangsefnum VSÓ en á áttunda áratugnum var smám saman haldið út á nýjar brautir til að mæta sífellt fjölbreyttari þörfum viðskiptavina. Sú þróun hefur haldið áfram, ýmist með þróun nýrra ráðgjafarsviða eða stofnun dótturfyrirtækja í samstarfi við aðila með sérþekkingu á viðkomandi sviðum.

VSÓ Ráðgjöf sinnir nú alhliða verkfræðiráðgjöf við hvers konar mannvirkjagerð. Þeir Bjarni og Stefán létu af störfum 2005 og er fyrirtækið síðan í eigu 15 hluthafa sem allir eru starfsmenn VSÓ Ráðgjafar. Árið 2008 störfuðu um 75 manns hjá VSÓ.

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is