Leturstærð
Lítið Venjulegt Stórt
 

  1. Greinargerð:
  2. Frumathugun á aðgengi
  3. Tölvugert líkan

  1. Sérfræðiskýrslur
    og ítarefni:
  2. Um tilurð verkefnisins
  3. Öryggi og verndun
  4. Teikningar
  5. Tillögur arkitekta
  6. Kostnaðaráætlun
  7. Jarðfræði
  8. Vatnafar
  9. Gróður
  10. Ferðamál
  11. Nemendaverkefni

 

Forsíða - Öryggi og verndun

 

 

 

 

 

Öryggi og verndun


Stóraukin umferð í kjölfar aukinnar vitneskju almennings um tilvist gígsins hafði leitt til átroðnings og skemmda á viðkvæmum hlíðum gígsins og næsta nágrenni, auk þess sem fólki var hætta búin í nágrenni gígopsins.

Þekkt eru tilfelli þar sem fennt hefur alveg yfir gígopið að vetri og ummerki sést um að lúnir ferðalangar hafi nestað sig í skjóli fyrir norðaustan þæfingi í snjófylltri gígskálinni,
með 120 m djúpt gímaldið vomandi undir.

Framan af var engin ein leið augljós til uppgöngu á gíginn og höfðu ferðalangar því gengið upp viðkvæmar hlíðar gígsins á nokkrum stöðum. Hlíðarnar eru þaktar afar viðkvæmum hraunslettum, mosagróðri og gjalli og höfðu því fljótt myndast misáberandi troðningar. Til að vernda hlíðar gígsins og tryggja öryggi ferðalanga ákváðu Þríhnúkar ehf. í samráði við Kópavogsbæ og umhverfisráðuneytið að stika eina leið til uppgöngu, með fíngerðum og lítt áberandi hætti, og merkja upphaf leiðarinnar með upplýsingaskilti og varúðarmerkingum. Jafnframt var reist snyrtileg öryggisgirðing umhverfis gígopið. Naut félagið við það verkefni aðstoðar forstöðumanns skíðasvæðanna, auk meðlima Hjálparsveitar skáta í Kópavogi, sem ásamt Þríhnúkum ehf. unnu verkið í sjálfboðavinnu.

 

Samhliða ofangreindum aðgerðum var einnig fjarlægt rusl, skilti og girðingar frá gamalli tíð. Þá var hraunhellum og gjalli hagrætt í gömlu troðningana og þeir þannig afmáðir að mestu. Vatn, vindar og hægfara sjálfslækning náttúrunnar mun svo ljúka verkinu.

 

 

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is