
Nemendaverkefni
Nokkrar nemendaskýrslur hafa verið gerðar tengdar aðgengi Þríhnúkagígs undir handleiðslu Þórðar Vikings Friðgeirssonar, Háskólanum í Reykjavík.
Fræðslusetur Þríhnúkagígs, höfundar Berglind Ólafsdóttir, Jón Gunnar Steinarsson, Kristín S. Gunnarsdóttir og Sigurlaug Sverrisdóttir (Háskóli Reykjavíkur 2006). Í verkefninu er útfært fræðslusetur sem er staðsett í jarðgöngunum sjálfum. Hluti verkefnis er skilgreining á hagsmunaaðilum og hugsanlegu framlagi þeirra til verkefnisins.
Þríhnúkar, frumhönnun aðkomu og aðstöðu - Verkefnishandbók, höfundar Ólafur M Birgisson, Stefán Bjarnason, Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, Hafliði Richard Jónsson og Emil Birgis Hallgrímsson (Háskóli Reykjavíkur 2006). Verkefnið leggur grunn að ákvarðantöku við opnun gígsins.
Þríhnúkar Kynningarbæklingur, h öfundar Anna Stella Guðjónsddóttir, Berglind Ósk Ragnarsdóttir, Guðrún Soffía Sigurðardóttir, Hugrún Harðardóttir og Nanna Jónsdóttir (Háskóli Reykjavíkur 2006). Verkefnið lýsir gerð kynningarbæklings um Þríhnúkagíg sem hugsast dreift til allra heimila landsins.
Project Initiation Document, Þríhnúkagígur, höfundar Beatrice Atallah, Diego Santacruz, Kim Lindqwister og Tobias Klose (Háskóli Reykjavíkur 2006). Verkenfið lýsir gerð heimasíðu til kynningar fyrir Þríhnúkagíg.
Þríhnúkar Viðskiptaáætlun, h öfundar Edda María Hagalín, Guðný Gréta Guðnadóttir, Hrafnhildur Á. Svanlaugsdóttir, Pétur Sæwald Hilmarsson, Sonja Bjarnadóttir og Steinar Páll Magnússon (Háskóli Reykjavíkur 2004). Í verkefninu er gert ráð fyrir opnun gígsins og framkvæmdinni við að gera hann að einum vinsælasta ferðamannastað á landinu. Gerð er úttekt á skoðunum hagsmunaaðila á opnun gígsins fyrir ferðamenn. Verkefnið skilgreinir styrkleika, veikleika, ógnir og tækifæri sem felast í að opna gíginn. Nefndir eru möguleikar á að gera Þríhnúkagíg að tónleikastað.
|