Leturstærð Lítið Venjulegt Stórt

 

  1. Greinargerð:
  2. Frumathugun á aðgengi
  3. Tölvugert líkan

  1. Sérfræðiskýrslur
    og ítarefni:
  2. Um tilurð verkefnisins
  3. Öryggi og verndun
  4. Teikningar
  5. Tillögur arkitekta
  6. Kostnaðaráætlun
  7. Jarðfræði
  8. Vatnafar
  9. Gróður
  10. Ferðamál
  11. Nemendaverkefni

 

Forsíða - Ferðamál

 

 

 

 

 

Ferðamál


Ingibjörg Guðrún Guðjónsdóttir ferðamálafræðingur tók saman upplýsingar um Ferðamannastaðinn Þríhnúka. Í samantekt kemur fram að Þríhnúkagíginn þurfi að gera þannig úr garði að hann geti tekið mikinn fjölda fólks og hafi sem fjölbreytilegast notagildi. Markhópurinn í sölu aðgöngumiða væri jafnt innlendir sem erlendir ferðamenn og gera þarf ráð fyrir minnst 500.000 gestum á ári. Opnun Þríhnúka hefur mikið aðdráttarafl í tengslum við markaðssetningu og stofnun Eldfjallagarðs á Reykjanesi. Lögð er áhersla á að gera þurfi ráð fyrir góðum göngustígum. Mikilvægt er að bjóða upp á sem víðtækasta afþreyingu og er nefnt Eldfjallasafn, norðurljósasetur, vísindasafn, veitingasala, minjagripaverslun, veislu- og fundaraðstaða og að tengja uppbyggingu við ferðaþjónustu í Bláfjöllum.

Gunnar Páll Eydal MRM hefur unnið fyrir Bláfjallafólkvang skýrsluna Sjálfbær þróun í Bláfjöllum, kerfi til sjálfbærrar stjórnunar (Desember 2004). Verkefnið er úttekt á skíðasvæðinu í Bláfjöllum og hugmyndir hvernig gera megi skíðasvæðið og fólkvanginn sjálfbærari í rekstri. Hluti verkefnisins er skilgreining á neikvæðum umhverfisþáttum af völdum átroðnings ferðamanna á svæðinu.

Ferðamannastaðurinn Þríhnúkar - Ingibjörg Guðrún Guðjónsdóttir

 

 

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is