
Vatnafar
Árni Hjartarson jarðfræðingur hefur gerði útekt á vatnafari svæðisins í kringum Þríhnúkagíg. Í niðurstöðum segir Árni að grunnvatnsborð undir Þríhnúkum sé að jafnaði í 180-190 m y.s. Gíghóllinn yfir hellinum er í um 530 m hæð. Heildardýpi hellis er um 200 m, hann nær því niður í 330 m. Þaðan eru síðan 140-150 m niður að grunnvatninu. Gangagerð við Þríhnúkagíg færi öll fram langt yfir grunnvatnsborði. Útreikningar sýna að ef grunnvatn berst skemmstu leið frá Þríhnúkum að því vatnsvinnslusvæði sem næst er, þ.e. Vatnsendakrikum, tæki það meðalvatnsdropann 23 ár að komast þá leið. Í ljósi ofangreindra aðstæðna og útreikninga virðist mengunarhætta af umsvifum við Þríhnúka afar lítil (ÍSOR 07181 26.06.2007).
 |