Leturstærð Lítið Venjulegt Stórt

 

  1. Greinargerð:
  2. Frumathugun á aðgengi
  3. Tölvugert líkan

  1. Sérfræðiskýrslur
    og ítarefni:
  2. Um tilurð verkefnisins
  3. Öryggi og verndun
  4. Teikningar
  5. Tillögur arkitekta
  6. Kostnaðaráætlun
  7. Jarðfræði
  8. Vatnafar
  9. Gróður
  10. Ferðamál
  11. Nemendaverkefni

 

Forsíða - Jarðfræði

 

 

 

 

 

Jarðfræði

 

Kristján Sæmundsson jarðfræðingur hjá ÍSOR tók saman niðurstöður vegna jarðfræðirannsókna og skoðaði tillögur vegna gangnagerðar. Skýrsla Kristjáns byggir á yfirborðsrannsóknum og öðrum tiltækum gögnum um hvort gerlegt er að gera hellinn aðgengilegan. Gerð er í skrýrslunni grein fyrir jarðlögum og gerð hraunanna. Lýst er jarðlögum kringum Þríhnúka og kortlögð misgengi og gjár. Fjallað er um eldvirkni og brotahreyfingar. Grunnvatnsstöðu er lýst og lagt mat á áhrif vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Farið er yfir kosti og galla vegna aðkomuleiða og gerðar tillögur um gangnaleiðir ( ÍSOR 0164 09.11.2006).

Jarðfræðiskýrsla Kristjáns Sæmundssonar

 

 

Til að svara því hvort hægt væri að gera göng að gíghvelfingunni var talið nauðsynlegt að ná borkjörnum úr hraunlagastaflanum á nærsvæði gígsins og sannreyna niðurstöður sem byggðar voru á yfirborðsrannsóknum. Undirbúningur borana miðaðist við að trygja að boranir, flutningur tækja og vatns myndu ekki valda raski á svæðinu. Fullyrða má að vel tókst til og að ekkert rask, utan borkjarnaholanna sjálfra, varð af þessum rannsóknum.

Kristján Sæmundsson tók saman greinargerð um borkjarnatökuna (ISOR 08103 24.10.2008) sem í grófum dráttum staðfestir niðurstöður jarðfræðiskýrslu.

Helstu niðurstöður kjarnaborana, Kristján Sæmundsson

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is