s Leturstærð
Lítið Venjulegt Stórt
 

  1. Greinargerð:
  2. Frumathugun á aðgengi
  3. Tölvugert líkan

  1. Sérfræðiskýrslur
    og ítarefni:
  2. Um tilurð verkefnisins
  3. Öryggi og verndun
  4. Teikningar
  5. Tillögur arkitekta
  6. Kostnaðaráætlun
  7. Jarðfræði
  8. Vatnafar
  9. Gróður
  10. Ferðamál
  11. Nemendaverkefni

 

Forsíða - Um tilurð verkefnisins

 

 

 

 

 

Um tilurð verkefnisins


Árni B. Stefánsson augnlæknir, Björn Ólafsson og Einar K. Stefánsson stofnuðu árið 2004 félagið ”Þríhnúka ehf.” með það að markmiði að vinna að frumathugun á raunhæfi þess að gera Þríhnúkagíg aðgengilegan almenningi - en jafnframt og ekki síður að tryggja varðveislu gígsins og umhverfisins í nágrenni hans.

Félagið fól VSÓ Ráðgjöf að stýra vinnu við frumathugun á raunhæfi og fýsileika verkefnisins með það að markmiði að gefa út skýrslu sem svaraði flestum þeim spurningum sem upp gætu komið hjá væntanlegum framkvæmdaraðila eða fjárfestum s.s. varðandi skipulagsmál, leyfisveitingar, kostnað o.s.frv. Einnig var sérstök áhersla lögð á öryggismál s.s. hrunhættu, jarðskjálfta o.fl. að ógleymdum ýmsum álitaefnum varðandi umhverfismál og náttúruvernd. Farið var af stað með umhyggju og virðingu fyrir hellinum og umhverfi hans að leiðarljósi. Vísað er til greinargerðar frumkvöðulsins Árna B. Stefánssonar frá 2004 þar sem gerð er ýtarlegri grein fyrir hugmyndinni, aðdraganda verkefnisins og hugsjóninni sem að baki liggur.

Fjölmargir aðilar hafa lagt verkefninu lið með fjárstuðningi og kann félagið þeim bestu þakkir fyrir. Auk Kópavogsbæjar vill félagið sérstaklega þakka Reykjavíkurborg fyrir veittan stuðning, sem og fulltrúum hinna ýmsu ráðuneyta ríksisins.

 

Þríhnúkagígur

 

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is