
Unnið hefur verið að frumathugun á mögulegu aðgengi Þríhnúkagígs frá árinu 2004 og lauk þeirri vinnu í nóvember 2009.
Árið 2011 hófst vinna við gerð mats á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Þríhnúkagíg en aðkomuvegur og þjónustumiðstöð eru tilkynningarskyldar framkvæmdir til Skipulagsstofnunar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Í stikunni hér til vinstri er hægt að nálgast frumathugun á aðgengi Þríhnúkagígs ásamt ýmisskonar ítarefni. Þar er einnig hægt að nálgast þær skýrslur og gögn sem gefin hafa verið út vegna mats á umhverfisáhrifum.
|