Um VSÓ Ráðgjöf
VSÓ Ráðgjöf var stofnuð árið 1958. Í upphafi starfaði fyrirtækið einkum á sviði byggingarverkfræði en á áttunda áratugnum var lagt út á nýjar brautir í þjónustu til að mæta kröfum viðskiptavina.
Á síðasta áratug hafa umsvif VSÓ aukist mjög mikið. Mikið uppbyggingarstarf hefur átt sér stað hjá fyrirtækinu og þjónustugrundvöllur þess hefur verið breikkaður, ýmist með þróun nýrra ráðgjafasviða eða stofnun dótturfélaga í samstarfi við aðila sem hafa yfir að búa sérþekkingu á viðkomandi sviðum.
VSÓ Ráðgjöf veitir viðskiptavinum sínum alhliða verkfræðiráðgjöf með það að markmiði að tryggja þeim hagkvæmustu lausnir í hverju verkefni sem skila þeim raunverulegum árangri og forskot á sínu sviði.
Einkunnarorð VSÓ Ráðgjafar eru:
ÁRANGUR - FRAMFARIR - FORSKOT
ÁRANGUR: Við leggjum áherslu á að öll verkefni sem við tökum að okkur skili raunverulegum árangri fyrir viðskiptavininn.
FRAMFARIR: Stöðugar framfarir skipta VSÓ Ráðgjöf höfuðmáli því aðeins þannig getum við hjálpað viðskiptavinum okkar að bæta árangur.
FORSKOT: Við viljum að ráðgjöf okkar hjálpi viðskiptavinum að ná forskoti á sínu sviði.
|