Framtíðarsýn
Þjónustumarkmið VSÓ Ráðgjafar:
- Nýjungar, frumkvæði og framsækni
- Nútímaleg ráðgjöf og opið hugarfar gagnvart fjölbreyttum lausnum
- Vandaðar lausnir og stöðug gæði þjónustunnar
- Víðtæk og þægileg þjónusta
- Jákvætt samstarf við viðskiptavini
- Hæfileiki til að fylgja málum til enda
- Öflugt og samhent starfslið
Stefna VSÓ Ráðgjafar:
- VSÓ Ráðgjöf fjárfestir í þróun fyrirtækisins með því að leggja markvisst fram aukinn tíma til menntunar starfsfólks og um leið betri þjónustu við viðskiptamenn.
- VSÓ Ráðgjöf skapar ásamt starfsmönnum sínum áhugaverðan starfsvettvang með fjölbreyttum verkefnum og öflugri samvinnu.
- VSÓ Ráðgjöf leggur verulega ábyrgð á hendur starfsmanna og umbunar þeim jafnframt fyrir árangur sem þeir ná.
- VSÓ Ráðgjöf stefnir að því að hún hafi fjárhagslegan styrk til að takast á við framtíðarverkefni og skili eigendum sínum viðunandi arði.
- VSÓ Ráðgjöf stefnir að áframhaldandi vexti með það fyrir augum að fylgja eftir þörfum viðskiptavina fyrir öfluga og víðtæka þjónustu.
- VSÓ Ráðgjöf mun áfram byggja á grunnstyrk fyrirtækisins sem felst í:
- Hæfu starfsfólki og fjölbreyttri menntun þess og reynslu
- Stærð fyrirtækisins og víðtæku þjónustuframboði
- Stjórnun og vöktun á innri starfsemi
- Tengslum við erlenda ráðgjafa
|
Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is
|





|