Leturstærð
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. > Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  15. Gæðakerfi
  16. Samstarfsaðilar
  17. FRÉTTIR
  18. FORSÍÐA
  19. ENGLISH

Content on this page requires a newer version of Adobe Flash Player.

Get Adobe Flash player

Lokaðir vefir:

Forsíða - Hafa samband - Starfsumsóknir

Starfsumsóknir

 

Laust starf landslagsarkitekts

VSÓ leitar að landslagsarkitekt til að vinna að fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum innanlands og í Noregi. Leitað er að einstakling með jákvætt viðhorf og góða hæfileika í mannlegum samksiptum, sem er tilbúinn til að verða hluti af fjölbreyttu og skemmtilegu starfsmannaumhverfi VSÓ Ráðgjafar ásamt því að hafa:

  • Metnað og vilja til að þroskast í starfi.
  • Hæfileika til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Kunnáttu í ensku og a.m.k. einu norðurlandamáli.
  • Starfsreynslu og góða þekkingu á MicroStation / AutoCad, Sketch up eða sambærilegum forritum.

 

Starfið er á sviði Umhverfis og skipulags og felst einkum í vinnu við landmótun og hönnun skóla- og leiksvæða, almennri hugmynda- og hönnunarvinnu, ásamt því að vera hluti af þverfaglegu hönnunar- og skipulagsteymi VSÓ Ráðgjafar.

Hægt er að sækja um starfið með því að senda tölvupóst á umsokn@vso.is merktan Landslagsarkitekt fyrir 1. júlí.

Verkefni VSÓ við landslagshönnun hafa einkum verið við hönnun skóla- og leiksvæða, útivistarsvæða, umhverfi samgöngumannvirkja og atvinnulóða. Meðal verkefna eru ýmis verkefni við fegrun borgarumhverfis m.a. Betri hverfi í Reykjavík, endurbætur á Vesturbæjarlaug, hönnun skólalóða o.fl. í Noregi, hringtorg og umhverfi Höfðatorgs, landgreining Lambafellsgjár, Hafnartorg í Sandgerði og umhverfi tengivirkja.

 

Laust starf sérfræðings í skipulagsmálum

VSÓ leitar að sérfræðingi til að vinna að fjölbreyttum skipulagsverkefnum. Leitað er að sérfræðingi sem er jákvæður og lipur í mannlegum samskiputm ásamt því að hafa:

  • Menntun á sviði skipulagsmála, s.s. skipulagsfræði eða landslagsarkitektúr.
  • Reynslu af skipulagsverkefnum.
  • Metnað og vilja til að þroskast í starfi.
  • Hæfileika til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Kunnáttu í ensku og a.m.k. einu norðurlandamáli.

 

Starfið er á sviði Umhverfis og skipulags og felst einkum í vinnu við gerð aðalskipulagsáætlana, deiliskipulagsáætlana, umhverfismat áætlana, ásamt ýmisskonar greiningarvinnu.

Hægt er að sækja um starfið með því að senda tölvupóst á umsokn@vso.is merktan Sérfræðingur í skipulagsmálum, fyrir 1. júlí.

VSÓ hefur unnið að mörgum skemmtilegum skipulagsverkefnum á eigin vegum eða í samstarfi við aðra þ.m.t. Svæðisskipulag Suðurnesja, Aðalskipulag Reykjanesbæjar, Aðalskipulag Sandgerðisbæjar, Aðalskipulag Mýrdalshrepps, Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar, umhverfismat Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030, umhverfismat landsskipulagsstefnu 2013-2024, umhverfismat samgönguáætlunar 2011-2022, stjórnunaráætlun Reykjanesfólkvangs, deiliskipulag iðnaðar- og ferðamannasvæða, hafnarsvæða, atvinnusvæða og íbúðarsvæða.

 

Almenn umsókn

VSÓ Ráðgjöf hefur sífellt áhuga á því að bæta við sig metnaðarfullu og jákvæðu starfsfólki sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum. Hægt er að senda inn almenna umsókn með því að senda tölvupóst merktan Almenn umsókn á umsokn@vso.is ásamt starfsferilsskrá með helstu upplýsingum um menntun, fyrri störf o.s.frv.

 

Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is