Verslun og þjónusta
Þjónusta við fyrirtæki sem tengjast verslun
og þjónustustarfsemi í víðum skilningi
er mikilvægur þáttur í starfsemi VSÓ Ráðgjafar. Þjónusta
við fyrirtæki í samkeppnisrekstri hefur lengi verið stærri
hluti af starfsemi VSÓ Ráðgjafar en annarra sambærilegra
ráðgjafarfyrirtækja.
VSÓ hefur lengi verið leiðandi í ráðgjafarþjónustu
við innflutningsverslun og flutningafyrirtæki. Styrkur
okkar liggur m.a. í breiðri þekkingu varðandi
allt sem lýtur að vörustjórnun, birgðahaldi
og dreifingu á vöru auk þekkingar á mannvirkjagerð og
framkvæmdum. Á einum stað er því þekking
til að meta og þróa og útfæra heildarlausnir á þörfum
viðskiptvina.
Þjónusta við verktaka í byggingariðnaði
er mikilvægur liður í því að halda
tengslum við það er að gerast á markaðnum
og taka þátt í þróun lausna og innleiðingu
nýjunga jafnt í framkvæmdum sem rekstri. VSÓ Ráðgjöf
sinnir alhliða ráðgjöf fyrir stóra sem
smáa verktaka.
Nánari upplýsingar veitir Grímur M. Jónasson
|