Sjávarútvegur
Á sviði sjávarútvegs hefur ráðgjöf
VSÓ Ráðgjafar og dótturfyrirtækja
einkum verið tengd ýmiss konar rekstrarráðgjöf
við fyrirtæki í greininni. Ráðgjöfin
hefur spannað sviðið frá veiðum til fullvinnslu,
og lógistik (vörustjórnun) í tengslum við meðhöndlun
afurða til sölu.
Umhverfismál sjávarútvegsins eru sífellt
að verða meira áberandi og nýtist þá vel
sérfræðiþekking starfsmanna við mörkun
umhverfisstefnu, uppsetningu umhverfisstjórnunarkerfa og skipulagningu
alls konar eftirlits með umhverfisþáttum.
Við höfum yfir að ráða sérfræðingum í kælikerfum
og í meðhöndlun sem tryggir ferskleika hráefnis
er geta aðstoðað sjávarútvegsfyrirtæki
við að auka framlegð með auknum vörugæðum
og hærra verði á afurðum.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Jónsson |