Opinberir aðilar
VSÓ Ráðgjöf
veitir ríki, sveitarfélögum, stofnunum og öðrum
opinberum fyrirtækjum fjölbreytta þjónustu. Þessi þjónusta felst ekki aðeins í hefðbundnum verkfræðiverkefnum,
eins og hönnun og eftirliti, heldur einnig í ráðgjöf
við þjónustuútboð af ýmsu tagi.
Opinberir aðilar hafa að undanförnu horft til nýrra
leiða til að koma verkefnum, sem þeir hafa sinnt, til
einkaaðila. Svokölluð einkaframkvæmd hefur oftast
verið notuð í þeim tilgangi. VSÓ Ráðgjöf
hafði á hendi verkefnastjórn við fyrsta verkefni
af þessu tagi sem boðið var út með einkaframkvæmdarsniði, þ.e.
Iðnskólanum í Hafnarfirði. Síðan þá hafa
sérfræðingar VSÓ komið að nokkrum
slíkum verkefnum bæði fyrir opinbera aðila en
einnig sem ráðgjafar bjóðenda.
Sem dæmi um viðfangsefni fyrir opinbera aðila má nefna
:
- Verkefnastjórnun margvíslegra verkefna
- Hönnun, hönnunarstjórn og hönnunarrýni
- Umhverfismál og skipulagsmál
- Framkvæmdaráðgjöf, s.s. eftirlit og önnur
umsjón framkvæmda
- Útboð á þjónustuverkefnum, s.s.
ræstingu, starfsemi leikskóla o.fl.
- Rekstur fasteigna
- Einkaframkvæmd verkefna sveitarfélaga og ríkis
- Eignaumsýsla, öryggismál o.þ.h.
Nánari upplýsingar veitir Þorbergur Karlsson
|