Framkvæmdasvið
Framkvæmdaráðgjöf er samheiti ráðgjafaþátta
sem VSÓ Ráðgjöf hefur unnið að um áratugaskeið og
ná til stjórnunar og gæðaeftirlits á undirbúnings-,
framkvæmda- og rekstrarskeiði. Góð framkvæmdaráðgjöf
tryggir verkkaupa mannvirki á réttu gæðastigi og verði.
Starfsfólk VSÓ Ráðgjafar hefur víðtæka þekkingu á þessum
málum. Allir starfsmenn eru verk- og/eða tæknifræðingar
og hluti þeirra hefur einnig grunnmenntun sem iðnmeistarar.
Mikil áhersla
er lögð á að vera leiðandi í nýjungum
hvað varðar aðferðir og vinnubrögð. Þá má nefna
sem dæmi verkþáttarýni, hönnunar- og
kostnaðarrýni,
notkun aðferða gæðastjórnunar við verkefnisstjórnun
og eftirlit. Ennfremur nýjungar í útboðs og
samningsformum s.s. samstarfsamningum, einkaframkvæmdarútboðum
o.s.frv. (PPP, PFI)
Meðal viðfangsefna á framkvæmdasviði
eru :
Verkefnastjórnun
Framkvæmdaeftirlit Hönnunar-
og kostnaðarrýni Áætlanagerð
Viðhald
og eignaumsýsla Þjónustuútboð Vörustjórnun
Grímur M. Jónasson veitir nánari upplýsingar
um framkvæmdaráðgjöf. |